Skilmálar
Seljandi er Betri Bolti slf.
Kennitala: 590324-1160
Vsk númer: 156142
Netfang: betribolti@betribolti.is
Sími: 8635443
Lögheimili: Fossvegur 4(305), 800 Selfoss
Lagt er upp með að afgreiða pantanir samdægurs eða næsta virka dag en seljandi áskilur sér allt að þrjá virka daga til að afgreiða pöntun til sendingaraðila. Sendingaraðili og afhendingarmáti er valinn í greiðsluferli. Heimilisföng í 800 Selfoss fá valmöguleika á heimkeyrslu. Boðið er upp á að sækja á Selfossi en viðskiptavinur þarf að hafa samband í tölvupósti á betribolti@betribolti.is, í síma 8635443 eða í skilaboðum á Facebook eða Instagram til að komast saman um tíma og staðsetningu. Seljandi fellir niður sendingargjald á Droppsendingu ef verslað er fyrir 10.000kr eða meira. Kaupandi greiðir annars sendingargjald eftir gjaldskrá Dropp eða Íslandspósts.
Greiðslumátar eru millifærsla á bankareikning 0133-15-007325 kt. 590324-1160(pöntunarnúmer í tilvísun og kvittun sendist á betribolti@betribolti.is), greiðslukrafa í netbanka(seljandi greiðir seðilgjald í stað kaupanda) og greiðslukort í gegnum örugga greiðslugátt Verifone og er Landsbankinn færsluhirðir(okt-mars er greiðslugátt lokuð). Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupverð er að fullu greitt, jafnvel eftir afhendingu.
Verð eru uppgefin með 24% vsk. Verð geta breyst án fyrirvara vegna rangra verðupplýsinga, innsláttar-, tækni- eða prentvillna. Seljandi áskilur sér rétt til að rifta kaupum sé greitt rangt verð vegna innsláttar-, tækni- eða prentvillna. Sé um verðbreytingu í áskriftarsamning að ræða mun seljandi tilkynna um verðbreytinguna að minnsta kosti 14 dögum fyrir næstu greiðslu.
Kaupandi hefur rétt til að hætta við kaup innan 14 daga án útskýringa svo lengi sem varan er ónotuð og í upprunalegum umbúðum. Ef kaupandi vill falla frá þessum samningi skal hann tilkynna það í tölvupósti til betribolti@betribolti.is og munum við endurgreiða að undanskildu sendingargjaldi. Kaupanda er skylt að bera kostnað af afhendingarmáta við skil á vörum í samræmi við seljanda í tölvupóstsamskiptum. Endurgreiðsla fer fram án ástæðulausrar tafar og ekki síðar en 14 dögum eftir að okkur berst varan til baka.
Vakni grunur um galla í vöru skal seljanda tilkynnt það í tölvupósti til betribolti@betribolti.is með útskýringum og mynd/um. Sé um gallaða vöru að ræða býðst kaupanda ný vara í staðinn, endurgreiðsla eða úrbætur sem samið er um í tölvupóstsamskiptum. Tilkynningafrestur galla er tvö ár og átt er við framleiðslugalla, ekki slit á vöru svo sem skrámur og sprungur á golfboltum við notkun. Komi til ágreinings getur kaupandi leitað til Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa (www.kvth.is).
Farið er með allar persónuupplýsingar kaupanda sem algjört trúnaðarmál og þær aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára viðskiptafærslu. Vefþjónustur t.d. Google eða Meta geta vistað kökur í tengslum við skoðaðar vörur, körfur og því um líkt. Með kaupsamning samþykkir kaupandi að skrá sig á tölvupóstlista Betri Bolta slf. nema annað sé tekið fram við kaup. Hægt er að afturkalla samþykkið með tilkynningu í tölvupósti til betribolti@betribolti.is. Fullum trúnaði er heitið um netfang kaupanda og það ekki framselt né deilt þriðja aðila.
Seljandi leitast eftir að leysa öll vafamál og ágreininga í gegnum tölvupóst til betribolti@betribolti.is. Takist ekki að leysa málið er hægt að leita til Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa (www.kvth.is). Sem lokaúrræði er hægt að fara með málið fyrir dómstóla. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda.
Allt efni á www.betribolti.is er eign Betri Bolti slf. Afritun og endurdreifing er óheimil nema með skriflegu leyfi.
ÁSKRIFTARSKILMÁLAR
Allir helstu skilmálar hér að ofan gilda einnig um áskriftarsamninga.
Þar sem kaupandi nýtur lægra vöruverðs skrái hann sig í áskrift er kaupandi skuldbundinn í þrjá mánuði. Vilji kaupandi segja upp áskriftarsamningi skal uppsögn berast í tölvupósti til betribolti@betribolti.is ekki seinna en 5 virkum dögum fyrir næstu afhendingu. Seljandi heimilar breytingu á vörum í áskrift þó kaupandi sé enn í fyrstu þremur skuldbundu mánuðum samnings, óskað er eftir breytingu með tölvupósti til betribolti@betribolti.is.
Þegar kaupandi stofnar til áskriftarsamnings með staðfestingu á áskriftarpöntun á vefverslun er fyrsta afgreiðsla afgreidd innan þriggja virkra daga líkt og hefðbundin pöntun. Ef stofnun áskriftar er 10 virkum dögum eða meira fyrir næstu mánaðarmót afgreiðast bæði stofnpöntun og um mánaðarmótin en ef stofnpöntun er minna en 10 virkum dögum fyrir næstu mánaðarmót er einungis afgreitt stofnpöntun og næsta afgreiðsla því rúmlega mánuði síðar. Kaupandi má óska eftir afgreiðslu um næstu mánaðarmót til viðbótar með tölvupóst þess efnis tölvupósti til betribolti@betribolti.is.
Áskriftarsamningur er ótímabundinn og endurnýjast sjálfkrafa ár hvert en einungis er virkt afhendingartímabil frá og með apríl og til september (6mánuðir). Afhending er í upphafi hvers mánaðar. Ekki er tekið greiðslur fyrir óvirka mánuði frá og með október til mars (6mánuðir).
Með því að ganga frá pöntun á vörum með "ÁSKRIFT" í vöruheitinu samþykkir kaupandi þennan áskriftarsamning. Kaupandi getur greitt fyrir stofnpöntun með öllum greiðslumátum í hefðbundnum skilmálum en mánaðarleg greiðsla áskriftar er með kröfu í netbanka sem viðkomandi hefur svo 10 daga til að greiða og seljandi greiðir seðilgjald í stað kaupanda.
Engin viðbótargjöld eru fyrir áskriftarsamning. Áskriftarsamningur er ótímabundinn og því ekki hægt að gefa upp heildarverð samnings. Heildarverð hverrar greiðslu fer eftir vali kaupanda á vöru, fjölda og afhendingarmáta og er uppgefið í greiðsluferli.