SÉRMERKTIR BOLTAR

Við bjóðum nú upp á sérmerkta bolta á ótrúlega góðu verði!!!

Ferlið er mjög einfalt, hér að neðan má sjá afsláttartöflu eftir hversu marga kassa(tylftir) af boltum eru pantaðir. Ef pantaðir eru 60 kassar af OnCore Avant erum við að tala um kassann á 2.716,- án vsk og gæti því eitt sleeve í teiggjöf kostað aðeins 679,- án vsk.

Þú sendir okkur mynd á png sniði og eru boltarnir merktir í Bandaríkjunum hjá OnCore.
Lágmarks pöntun er 6 kassar en ekkert pöntunar- eða vinnslugjald er sett á!

Fyrir pantanir yfir 48 kössum getum við pantað með sérafhendingu en til að geta boðið svona góð verð þá verðum við að sameina minni pantanir með innkaupapöntunum okkar eða öðrum sérpöntunum og ræðst afhending eftir því. Okkar innkaupapantanir eru almennt í apríl og svo júlí.

Auðvitað er best að panta með góðum fyrirvara, ef pöntunin er 48 kassar eða meira þá er mögulegt að sending sé komin á 2-3 vikum en ef um ræðir pöntun sem þarf að sameina með öðrum má gera ráð fyrir aðeins lengri tíma. Vinnslutími fyrir prentun er 7-10 virkir dagar.

Hér er reiknivél sem gefur þér verðhugmynd en pöntun þarf að berast í gegnum tölvupóst á betribolti@betribolti.is.

Hægt er að kynna sér boltana nánar hér á síðunni og eru þeir allir fáanlegir hvítu, gulu og neon grænu, hægt er að senda fyrirspurn á netfangið okkar um aðstoð eða ráðleggingu við val á boltum.

TEGUND VERÐ ÁN VSK FJÖLDI KASSA SAMTALS ÁN VSK
AVANT 55 3.621 ISK 0 ISK
ELIXR 5.637 ISK 0 ISK
VERO X1 7.250 ISK 0 ISK
VERO X2 7.250 ISK 0 ISK
FJÖLDI KASSA: 0
FULLT VERÐ ÁN VSK: 0 ISK
Discount (0%): 0 ISK
SAMTALS ÁN VSK: 0 ISK
FJÖLDI KASSA AFSLÁTTUR
6-11 0%
12-23 5%
24-35 10%
36-47 15%
48-59 20%
60+ 25%

VERTU Í BANDI!